Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
5.2.2008 | 22:02
Ný dagsetning!
Elsku vinir;
Við ætlum að rugla aðeins meira í ykkur varðandi partýið. Það kom í ljós að Lauga fékk ekki frí þann 16.feb og það er eiginlega ómögulegt að meðlimur Ljóskuklúbbsins komist ekki, þar sem hún er ein af skipuleggjendunum. Það kom líka í ljós að Stína Ljóska er á leiðinni í bæinn í byrjun mars og þá fannst okkur eiginlega ekki annað hægt en að breyta dagsetningunni. Ég vona að þetta komi sér ekki illa fyrir neinn og að kannski komist þá einhverjir sem sáu fram á að komast ekki þann 16.feb.
Erla, Ausa, Stína og Lauga : )
30.1.2008 | 23:02
Grímubúningapartý 2008!
5.11.2007 | 14:34
Styttist í hrekkjavökupartýið!
Nú eru fimm dagar í hrekkjavökupartýið - þeir sem voru svo heppnir að fá boðskort endilega melda sig við einhverja af okkur í Ljóskuklúbbnum hið fyrsta :)
Kv
Ausa ofurljóska
6.11.2006 | 12:41
MYNDIR komnar inn! Sjá myndaalbúm Hrekkjavaka2006 muhahahahaa
5.11.2006 | 18:10
Velheppnuð Hrekkjavaka
Takk fyrir síðast! Mig langar að þakka öllum sem komu í hrekkjavökuna í gær og skemmtu sér með okkur. Þetta var virkilega skemmtilegt og Ljóskuklúbburinn hlakkar til að endutaka leikinn að ári. Búningarnir og gervin voru frábær ( myndir koma inn á morgun
), enda ekki við öðru að búast þegar svona skemmtilegur hópur kemur saman!
2.11.2006 | 15:51
"Hræðilega" stutt í partýið...
Jæja, núna er þetta allt að bresta á, enda herlegheitin á laugardaginn. Síðasti skipulagsfundur Ljóskuklúbbsins var haldinn í gær og kom þá í ljós að Lauga kom ekki alveg tómhent frá Bandaríkjunum..Við erum semsagt með skreytingar sem eiga eftir að famkalla alveg réttu stemmninguna þannig að varúlfum, vampýrum, uppvakningum og skrímslum ætti að líða eins og heima hjá sér .....
Við komumst líka að því að Hókus Pókus á Laugaveginum er búin að stækka og er orðin hálfgerð hrekkjavökubúð. Ef einhver er ennþá að vandræðast með gervi, þá er um að gera að kíkja þangað. Sömuleiðis er bandalag íslenskra leikara þarna rétt hjá ( Laugavegi 96, við hliðina á Toni&Guy ), en þar er hægt að kaupa allskonar förðunarvörur og hárkollur.
Annars erum við orðnar rosa spenntar og hlökkum mikið til að skemmta okkur með ykkur!
p.s ekki hika við að taka skemmtilega vini úr vinhópum ykkar með, the more the merrier!
Erla hin skelfilega
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2006 | 14:08
5 dagar í hrekkjavöku!!
Jæja - nú líður tíminn og það nálgast í partýið ógurlega!
Undirbúningur gengur vel - erum enn að ganga frá smáatriðum og viljum minna þá á sem eiga eftir að leggja inn svo við getum klárað okkar hræðilegu skipulagningu.
Ýmsar forynjur og ófreskjur eru að bætast í hópinn og gestalistinn stækkar. Við höfum samt sem áður pláss fyrir nokkra í viðbót og að sjálfsögðu eru vinir og vandamenn, pör eða staklingar velkomnir...svo lengi sem þeir eru extra hræðilegir :) Þeir meiga svo sem líka vera krúttlegir eða bara hreint og beint kjánalegir....hehe
Viljum einnig benda á að það er velkomið að taka með sínar eigin veigar en eins og var minnst á í boðskortinu verður boðið upp á blóðugar veitingar að hætti hússins.
Hræðilega skemmtinefndin er að setja saman hræðileg skemmtiatriði og verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þeim ófögnuði.
Allar hugmyndir annars hræðileg vel þegnar :)
Með vígtannakveðjum (hint hint)
Auður
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2006 | 08:50
10 dagar í hrekkjavöku!!!
18.10.2006 | 16:16
...styttist í fjörið
Jæja ljóskufundur/hrekkjavökufundur var haldinn í gærkvöldi og það eru sífellt fleiri að bætast á listann. Enn vantar okkur staðfestingar og biðjum einnig þá sem hafa staðfest að borga inn á reikninginn.
Ef ykkur vantar hugmyndir ennþá endilega hafið samband...við erum með margar hugmyndir í pokahorninu :)
Gestirnir slaga núna upp í 40 manns og þetta verður rosalega flott mæting....en endilega staðfestið ! :)
Kær kveðja
Auður hin hræðilega!! MUAHAHAHAHAHAHAAAA.....