Bööööööö!!!!!

495_64925.jpg

Skreytingarnar sem voru keyptar fyrir okkur úti eru komnar og skutlaði Lauga þeim til mín áðan. Í sakleysi mín ( "hóst"...hehe ) hengdi ég upp eina af þeim inn á baði og alveg óvart dauðbrá Steina þegar hann kom heim...en semsagt, þá virkaði þetta ágætlega : )

Mér sýnist á öllu að húsið eigi eftir að fyllast mjög fljótlega, þannig að þeir sem eiga eftir að láta okkur vita að þeir ætli að koma eru vinsamlegast beðnir um að gera það sem fyrst : )

Erla hin hræðilega 


42 dagar í Hrekkjavökupartý

Dooo you think i´m seeexxxy???

Já, við erum orðnar mjög spenntar, það er víst á hreinu. Við erum að safna saman skreytingarefni og erum m.a komnar með beinagrind í fullri stærð, grasker, leðurblökur og fleira. "Boðskortin" hafa verið send út og nú er bara að sjá hversu fljótt húsið fyllist : ) Í dag eru komnir komnir á listann á bilinu 20 - 30 manns. Þannig að þeir sem vilja koma, endilega látið okkur vita sem fyrst.

Eftir að hafa skoðað ýmsar síður á netinu er ég ekki frá því að þetta sé sú stærsta og um leið sú skemmtilegasta að skoða :  www.buycostumes.com

Endilega kíkið ef ykkur vantar hugmyndir!

Svo er alveg spurning ef Ausa mætir sem "Bubba byggir" að ég mæti í þessu......: D 


Úhhhhhh ssscaaarrryyy

Bubba Byggir

LOL

Ég er að spá í að fara sem Bubba Byggir......

ausataus


hrekkjavaka@gmail.com

ip013069.jpg

Fundurinn gekk vel og núna er búiðað skipuleggja flest sem viðkemur hrekkjavökunni. Við erum búnar að setja niður gestalista, spekúlera í skreytingum og dagskránni og bóka húsið. Sprellið verður þann 4.nóvember og núna er bara um að gera að fara að undirbúa sig : ) Fyrir gestina okkar, þá erum við með netfangið hrekkjavaka@gmail og þangað er hægt að senda staðfestingu á mætingu, spurningar eða bara hvað sem viðkomandi liggur á hjarta. "Boðskortin" verða svo send út á næstu dögum.

Erla hin hræðilega

Auður Dauður

Lauga hin skeggjaða

Stína Skelfilega 

MúAHAHAHAHAHAHAHA!!! 


Fundur hjá Hrekkjavökunefnd

ip014858.jpg

Fundurinn verður haldinn næsta fimmtudag kl. 19 á Pottinum og Pönnunni. Við erum komnar með fullt af hugmyndum og ekki væri vitlaust ef hver og ein væri til í að punkta þær niður á blað og taka með sér. Einnig er gott að vera með "gestalista". Hlakka til að sjá ykkur!

Erla hin hræðilega..... 


Hrekkjavökufundur no. 2

Jæja, núna líður að fundi no. 2 hjá skipulagsnefndinni. Ég heyrði í Laugu í dag og við ætlum að reyna að stefna á fund í næstu viku. Þar þurfum við að ákveða fjölda gesta og hverjir þeir verða. Skreytingar, leiguna og kostnaðinn í heild sinni Brosandi Bara gaman...

Stína

Elskan mín...lykilorðið er það sama og fyrir ljóskuklúbbsbloggið! Annars var pælingin með að leigja húsnæðið að prufa aðeins að stækka hópinn og bjóða þannig vinum okkar sem þætti gaman að taka þátt í þessu. Við getum auðvitað alltaf gert eitthvað skemmtilegt saman í heimahúsi og vissulega er það ekkert síðra. Við höfum bara ekki svo mikið val, sérstaklega ef um stærri hóp er að ræða. Erna systir varð þrítug í ágúst og hún hélt upp á afmælið sitt þarna og við Ausa vorum alveg sammála um að þetta yrði fullkominn staður til að sletta úr klaufunum! Húsið er alls ekki stórt og svolítið út úr, þannig að hávaðinn truflar engann. Semsagt bara gaman! En auðvitað er þetta allt saman ennþá bara á teikniborðinu og við eigum eftir að skoða allt betur. Annars væri mjög gott ef þið gætuð sett niður hugmyndir um það hverjum ætti að bjóða Brosandi ( eða þannig sko, því hugmyndin er að allir létu smá í púkk til að dekkja leiguna og kannski eitthvað fleira )

Hvað er þetta eiginlega?????

ip010573thumb_57646.jpg
Jæja, ég held að ég haldi ykkur ekki í spennu lengur. Myndin af búningnum hérrna fyrir neðan er af....................lambi! Já, þið lásuð rétt!..þetta er lamb. Hvar svona lömb er að finna skal ég láta ósagt, en þau eru örugglega ekki íslensk..lol : ) Lauga benti á ansi skemmtilega síðu sem ég skoðaði um daginn og ég get líka óhikað mælt með henni. Þvílíkt ímyndunarafl! búningarnir eru bara snilld : ) og fyrir þá sem hafa áhuga þá er alltaf hægt að kaupa í gegnum shop USA ; )

Flottir búningar!

Ég hef ekki hugmynd hvert eða hvort þeir senda en ég skemmti mér bara þrælvel að skoða búningana þarna!! Kíkið endilega á Comical búningana! LOL

www.halloweenmart.com

 Flaugan


Hvað er þetta?

bzeyw.jpg
Ég rakst á þennan búning áðan á íslensku búningaleigunni. Veist þú hvað þetta er??? svarið kemur á óvart. Endilega setjið hugmyndirnar ykkar í athugasemdir....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband